2-3.sæti niðurstaðan hjá fótboltastelpunum.

03.maí.2010  09:51
Fótboltastelpurnar spiluðu tvo leiki um helgina í Lengjubikarnum.  Á föstudagskvöld spiluðu þær gegn FH.  Okkar stelpur voru 1-0 yfir í hálfleik með marki frá Kristínu Ernu Sigurlásdóttur eftir glæsilegan undirbúning frá Lerato.  Okkar stelpur sofnuðu heldur betur á verðinun í seinni hálfleik og fengu á sig 3.mörk á 10.mínútna kafla.  Lokatölur því 3-1 fyrir FH.  Á laugardag léku stelpurnar gegn Haukum og lauk leiknum með jafntefli 2-2.  Haukar komust í 2-0 en okkar stelpur neituðu að gefast upp og náðu að jafna leikinn með mörkum frá Lerato (víti) og Hlíf.  IBV lenti því í 2-3.sæti með jafnmörg stig og Haukar. FH sigraði deildina.  Okkar stúlkur léku við fjögur úrvalsdeildarlið, sigruðu tvö, eitt jafntefli og töpuðu einum. Íslandsmótið hefst 19.maí.