Fótboltastelpurnar spiluðu tvo leiki um helgina í Lengjubikarnum. Á föstudagskvöld spiluðu þær gegn FH. Okkar stelpur voru 1-0 yfir í hálfleik með marki frá Kristínu Ernu Sigurlásdóttur eftir glæsilegan undirbúning frá Lerato. Okkar stelpur sofnuðu heldur betur á verðinun í seinni hálfleik og fengu á sig 3.mörk á 10.mínútna kafla. Lokatölur því 3-1 fyrir FH. Á laugardag léku stelpurnar gegn Haukum og lauk leiknum með jafntefli 2-2. Haukar komust í 2-0 en okkar stelpur neituðu að gefast upp og náðu að jafna leikinn með mörkum frá Lerato (víti) og Hlíf. IBV lenti því í 2-3.sæti með jafnmörg stig og Haukar. FH sigraði deildina. Okkar stúlkur léku við fjögur úrvalsdeildarlið, sigruðu tvö, eitt jafntefli og töpuðu einum. Íslandsmótið hefst 19.maí.