Flottir 5.flokks peyjar.

27.apr.2010  08:34
Peyjarnir í 5.flokki lögðu góðu málefni lið um síðustu helgi er þeir gengu í hús og seldu lyklakippu til styrktar góðu málefni.  Málefnið er til styrktar samtökum sem vinna að eflingu forvarna gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum.  Salan í eyjum gekk vel og erum við öll stolt af framtaki þessara drengja.