Um helgina fór fram handboltamót í 6.flokki drengja yngra ár. Mótið gekk afar vel eins og okkar er von og vísa. IBV 2 gerði sér lítið fyrir og vann sína deild. IBV 1 endaði íslandsmótið í 4.sæti sem er glæsilegur árángur. IBV 3 og IBV 4 stóðu sig með miklum sóma. Það er greinilegt að framtíðin er björt í handboltanum hér í eyjum. Gestir mótsins fóru heim með góðar minningar.