Góð byrjun í Lengjubikarnum

20.apr.2010  11:09
IBV stelpurnar byrja vel í Lengjubikarnum. þær höfðu í tveimur fyrstu leikjunum sigrað bæði lið Keflavíkur og ÍR.  Um síðustu helgi léku þær við Aftureldingu og sigruðu 5-3 með mörkum frá  Hlíf  2, Sóley  2 og Antonia 1.  Seinni leikurinn var gegn Grindavík og sigruðu okkar stelpur 1-0 með marki frá Þórhildi.  IBV er á toppi riðilsins með fullt hús stiga.