Bygging knattspyrnuhúss gengur vel

19.mar.2010  15:02
Mikið gengur á hér fyrir vestan Týsheimilið þessar vikurnar. Þar er vaskur hópur frá Steina og Olla að reisa fjölnota íþróttahús. Regin og félagar vinna sex daga vikunnar frá morgni til kvölds til að börnin sem æfa hjá ÍBV fái langþráð skjól til að æfa í, í haust. Ljósmyndari síðunar var svo óheppinn að hitta akkurat á þá í kaffi, nú í morgun.