Elísa og Kristín fara til Rússlands

16.mar.2010  12:50
Ólafur þór Guðbjörnsson landsliðsþjálfari Íslands U-19  hefur valið 18.manna leikmannahóp sem heldur til Rússlands á næstu dögum til að spila í milliriðli evrópumóts landsliða. Ólafur hefur valið tvær stúlkur frá IBV, þær Elísu Viðars og Kristínu Ernu.  Ísland leikur í  sterkum riðli með Spánverjum, Rússum og Tékkum.