Um síðustu helgi fór fram fundur á vegum HSI vegna yngri flokka. Þar var okkur eyjamönnum hrósað mikið fyrir frábæra skipulagningu á þeim mótum sem haldin hafa verið hér í eyjum. Skiptir þetta okkur miklu máli varðandi úthlutun móta á vegum HSÍ.
Menn viðruðu þá hugmynd að festa mót í ákveðnum aldursflokkum hér á hverju ári. Það gæti auðveldað skipulagningu og við gætum þróað skemmtilegt mót. Það á líka eftir að auðvelda það þegar nýja höfnin verður komin í gagnið.