Fjórar á leið á landsliðsæfingu í fótbolta.

08.mar.2010  15:47
Þær Kristín Erna Sigurlásdóttir og Elísa Viðarsdóttir hafa verið valdar til að fara með landsliði Íslands U-19  til Rússlands í Evrópukeppni landsliða.  Þá hafa Sigríður Lára Garðarsdóttir og Svava Tara Ólafsdóttir verið valdar til æfinga með U-17 ára landsliðinu.