Tap og jafntefli hjá fótboltastelpunum.

02.mar.2010  11:46
Kvennalið IBV lék tvo leiki í Faxaflóamótinu um síðustu helgi.  Fyrst var leikið gegn FH og sigruðu FH stúlkur 2-0.  IBV fékk fékk fjögur marktækifæri einn gegn markmanni en ekki náðist að nýta þau færi.  Seinni leikurinn var gegn Haukum og endaði 0-0.  Okkar stúlkur voru mun sterkari í leiknum en eins og gegn FH nýttust ekki færin í leiknum og því niðurstaðan þessi.  Reyndar skoraði IBV mark seint í leiknum en aðstoðardómarinn veifaði rangstöðu sem engin var.  Næsta verkefni liðsins er 12.Mars en þá hefst Lengjubikarinn.  Fyrstu leikirnir verða gegn IR og Keflavík.