Meistaraflokkur kvenna lék um síðustu helgi tvo leiki í Faxaflóamótinu. Á laugardag lék liðið gegn Keflavík og sigraði 4-2. Þórhildur Ólafsdóttir gerði 3.mörk og Hlíf Hauksdóttir 1. Á sunnudag léku stúlkurnar gegn Aftureldingu og gjörsigruðu þær 7-1. Mörkin gerðu Þórhildur Ólafsdóttir 3, Kristín Erna Sigurlásdóttir 3 og Sóley Guðmundsdóttir 1.