Bygging knattspyrnuhúss að komast á fullt

03.feb.2010  14:01

Fylgst verður með gangi mála hér á ibvsport.is

Þá er bygging nýs knattspyrnuhúss kominn af stað. Það eru drengirnir frá Steina og Olla sem sjá um að koma húsinu upp, eftir að íslenska gámafélagið hefur lokið við jarðvegsvinnuna. Það mun klárast á næstu dögum. Stefnt er að því að húsið verði tilbúið næsta haust.
Ljósmyndari ibvsport.is mun reglulega smella myndum af framkvæmdunum svo eyjamenn um allan heim geti fylgst með gangi mála.