Stórt tap um helgina hjá mfl. kvenna.

26.jan.2010  10:31
Meistaraflokkur kvenna í fótbolta tapaði stórt gegn Breiðablik á föstudagskvöld í Fífunni.  Lokatölur 8-1 fyrir blikastelpum.  Eftir erfiða Herjólfsferð og einungis 10.mín upphitun stóðu eyjastúlkurnar sig vel í um 30.mín en eftir það var allur vindur úr okkar stúlkum.  IBV náði forystu strax í byrjun þegar Kristín Erna komst í gegn eftir sendingu frá Hlíf og skoraði af öryggi.  IBV var hættulegri aðillinn framan af hálfleiknum en eins og fyrr segir var allur vindur úr okkar stúlkum eftir það.  Næstu leikir eru um helgina gegn Keflavík og Aftureldingu.