IBV stúlkur vekja áhuga liða erlendis.

19.jan.2010  14:20
Áhugi erlendra liða sem og háskóla í Bandaríkjunum á leikmönnum IBV fer vaxandi.  Nú síðast kom fyrirspurn frá Grimstad í Noregi um að fá þær Kristínu Ernu og Elísu til æfinga eftir að tímabili lýkur hér á landi.  Grimstad leikur í efstu deild í Noregi. Einnig hefur liðið beðið um upplýsingar um þær sögu Helgadóttur og Þórhildi Ólafsdóttur.   Áður hafði háskóli nálægt Boston í Bandaríkjunum boðið þessum fjórum leikmönnum ásamt Hafdísí Guðnadóttur að koma á fullum styrk í skólann. Annar háskóli á vesturströnd Bandaríkjana hefur einnig boðið leikmönnum fullann styrk til náms.