Fjórar á landsliðsæfingum í fótbolta.

11.jan.2010  09:22
Nú um síðustu helgi voru fyrstu æfingarnar hjá U-17  og  U-19 ára landsliði íslands í knattspyrnu.  Þær Sigríður Lára Garðarsdóttir og Svava Tara Ólafsdóttir voru valdar hjá U-17 ára liðinu þar sem eyjamaðurinn Þorlákur Árnason er þjálfari.  Elísa Viðarsdóttir og Kristín Erna Sigurlásdóttir voru valdar í U-19 ára liðið.  Framundan eru verkefni í norðurlandamótinu og í evrópukeppninni.