Nú um síðustu helgi voru fyrstu æfingarnar hjá U-17 og U-19 ára landsliði íslands í knattspyrnu. Þær Sigríður Lára Garðarsdóttir og Svava Tara Ólafsdóttir voru valdar hjá U-17 ára liðinu þar sem eyjamaðurinn Þorlákur Árnason er þjálfari. Elísa Viðarsdóttir og Kristín Erna Sigurlásdóttir voru valdar í U-19 ára liðið. Framundan eru verkefni í norðurlandamótinu og í evrópukeppninni.