Kveikt í áramótabrennu ÍBV klukkan 17:00 á gamlársdag

30.des.2009  15:52
Þá er árið 2009 að renna sitt skeið. Síðasti viðburður ársins hjá ÍBV er áramótabrenna í samstarfi við Vestmannaeyjabæ og Björgunarfélag Vestmannaeyja. Kveikt verður í klukkan 17:00 og hefst glæsileg flugeldasýning í kjölfarið. Brennan er staðsett í gryfjunni fyrir ofan Hásteinsvöll. Starfsfólk og stjórn ÍBV- íþróttafélags sendir landsmönnum öllum bestu óskir um gleðilegt nýtt ár og þakkar liðið ár.