Fótboltastelpurnar með tvo sigra.

21.des.2009  09:10
Kvennalið IBV í fótbolta lék á dögunum tvo leiki á fastalandinu ásamt því að æfa einu sinni.  Á miðvikudagskvöldinu léku þær gegn Keflavík í Reykjaneshöll og sigruðu 4-2.  Mörk IBV gerðu, Kristín Erna 2, Hlíf 1 og Þórhildur 1.  Á  fimmtudeginum var æft í Kórnum í Kópavogi og  síðan spilað gegn IR seinni partinn.  Okkar stúlkur sigruðu lið IR 3-1 með mörkum frá Sögu Huld, Söru Rós og Bylgju.