Kvennalið IBV í fótbolta lék á dögunum tvo leiki á fastalandinu ásamt því að æfa einu sinni. Á miðvikudagskvöldinu léku þær gegn Keflavík í Reykjaneshöll og sigruðu 4-2. Mörk IBV gerðu, Kristín Erna 2, Hlíf 1 og Þórhildur 1. Á fimmtudeginum var æft í Kórnum í Kópavogi og síðan spilað gegn IR seinni partinn. Okkar stúlkur sigruðu lið IR 3-1 með mörkum frá Sögu Huld, Söru Rós og Bylgju.