ÍBV kynnir með stolti framlengingu á samningi við Skeljung um Shellmótið. Þar með er tryggt að þetta glæsilega mót mun áfram ganga undir nafninu ,,Shellmótið" næstu árin. Shellmótið hefur verið glæsilegasta mót sem haldið er á Íslandi ár hvert. Á annað þúsund strákar í 6. flokki mæta þá til Eyja og skemmta sér og sínum konunglega.