Tm framlengir samning sinn um Pæjumót TM

26.nóv.2009  10:01
 ÍBV-íþróttafélag og Tryggingamiðstöðin hafa komist að samkomulagi um samning þess efnis að TM verði aðalstyrktaraðili Pæjumótsins. Mótið kemur því til með að heita Pæjumót TM áfram. ÍBV-íþróttafélag er sérstaklega ánægt með að hafa náð samningum við jafn öflugt
fyrirtæki og TM er.   
 
Það er mikill metnaður hjá TM fyrir að efla enn frekar kvennaknattspyrnuna og er það í sama anda og ÍBV- íþróttafélag starfar. Pæjumót TM hefur verið á stöðugri uppleið síðustu ár og virðist næsta mót sem haldið er 10-13. júní 2010 ætla að verða það stærsta í mörg ár.