Sigrar hjá karla og kvennaliðunum um helgina.

16.nóv.2009  10:27
Karla og kvennalið IBV spiluðu um helgina æfingaleiki á höfuðborgarsvæðinu. Þá spilaði karlaliðið einnig í Futsal tvo leiki sem þeir sigruðu.  Drengirnir léku báða sína leiki gegn Hvöt og sigruðu báða örugglega.  Á laugardag léku þeir svo gegn Þrótti og sigurðu 5-4.  Mörkin gerðu Eyþór Helgi 2, Anton 2 og Tryggvi 1.  Ungir drengir eru að fá tækifæri og í þessum leik fengu Guðni Freyr, Njáll Aron og Ingólfur allir tækifæri til að sýna hvað í þeim býr. 
Þá lék kvennaliðið einnig gegn Þrótti og sigraði 2-1 með mörkum frá Evu Maríu sem er búin að draga fram skóna á ný.