Karla og kvennalið IBV spiluðu um helgina æfingaleiki á höfuðborgarsvæðinu. Þá spilaði karlaliðið einnig í Futsal tvo leiki sem þeir sigruðu. Drengirnir léku báða sína leiki gegn Hvöt og sigruðu báða örugglega. Á laugardag léku þeir svo gegn Þrótti og sigurðu 5-4. Mörkin gerðu Eyþór Helgi 2, Anton 2 og Tryggvi 1. Ungir drengir eru að fá tækifæri og í þessum leik fengu Guðni Freyr, Njáll Aron og Ingólfur allir tækifæri til að sýna hvað í þeim býr.
Þá lék kvennaliðið einnig gegn Þrótti og sigraði 2-1 með mörkum frá Evu Maríu sem er búin að draga fram skóna á ný.