Fjórar valdar til landsliðsæfinga

12.nóv.2009  11:15
Fjórar stúlkur hafa verið boðaðar á lansdliðsæfingar um helgina.  Kristín Erna Sigurlásdóttir, Elísa viðarsdóttir og Saga Helgadóttir eru boðaðar með U-19 ára landsliðinu og Sigríður Lára Garðarsdóttir með U-17 ára landsliðinu.  Því miður varð Saga að afþakka sitt sæti þar sem hún hyggur á nám erlendis í vetur. Stangast þessi tími á við verkefni landsliðsins og á því Saga ekki möguleika á að mæta í þau.