Fjórar stúlkur hafa verið boðaðar á lansdliðsæfingar um helgina. Kristín Erna Sigurlásdóttir, Elísa viðarsdóttir og Saga Helgadóttir eru boðaðar með U-19 ára landsliðinu og Sigríður Lára Garðarsdóttir með U-17 ára landsliðinu. Því miður varð Saga að afþakka sitt sæti þar sem hún hyggur á nám erlendis í vetur. Stangast þessi tími á við verkefni landsliðsins og á því Saga ekki möguleika á að mæta í þau.