Þórhildur Ólafsdóttir áfram með IBV

25.sep.2009  13:47
Þórhildur Ólafsdóttir fyrirliði meistaraflokks IBV skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við félagið.  Þetta eru góðar fréttir fyrir eyjamenn þar sem Þórhildur hefur verið burðarás liðsins undanfarin ár.   Þá er ljóst að allir leikmenn liðsins verða áfram í herbúðum IBV að því undanskildu að Kristín Erna Sigurlásdóttir er að skoða sín mál en stjórn IBV vonast til að hún spili áfram með liði sínu.