Kristín Erna skoraði tvö gegn Rúmeníu

25.sep.2009  22:10
Íslenska U-19 ára landslið stúlkna sigraði Rúmeníu í síðasta leik sínum í Evrópukeppninni en þeirra riðill er leikinn í Portúgal.  Íslensku stúlkurnar sigruðu 5-0 og skoraði Kristín Erna tvö mörk.  Elísa Viðarsdóttir kom inní byrjunarlið og áttu báðar eyjastúlkurnar mjög góðan leik.  Það er þá ljóst að liðið er komið í milliriðil keppninnar.  Til Hamingju stelpur.