Íslenska U-19 ára landslið stúlkna sigraði Rúmeníu í síðasta leik sínum í Evrópukeppninni en þeirra riðill er leikinn í Portúgal. Íslensku stúlkurnar sigruðu 5-0 og skoraði Kristín Erna tvö mörk. Elísa Viðarsdóttir kom inní byrjunarlið og áttu báðar eyjastúlkurnar mjög góðan leik. Það er þá ljóst að liðið er komið í milliriðil keppninnar. Til Hamingju stelpur.