Kristín Erna skoraði gegn Portúgal

20.sep.2009  12:41
Kristín Erna Sigurlásdóttir skoraði seinna mark Íslands í gær er landslið Íslands U-19 sigraði heimastúlkur í Portúgal 2-0.  Kristín byrjaði sem vinstri kantmaður en var færð í sína stöðu seinna í leiknum og stuttu seinna skoraði hún mjög laglegt mark sem kom íslensku stúlkunum í 2-0.  Kristín átti mjög góðan leik sem endurspeglar sumarið hjá þessar efnilegu stúlku.  Elísa Viðarsdóttir er einnig í hóp liðsins en kom ekkert við sögu í gær. Næsti leikur liðsins er á morgun gegn Sviss.