Kristín Erna Sigurlásdóttir skoraði seinna mark Íslands í gær er landslið Íslands U-19 sigraði heimastúlkur í Portúgal 2-0. Kristín byrjaði sem vinstri kantmaður en var færð í sína stöðu seinna í leiknum og stuttu seinna skoraði hún mjög laglegt mark sem kom íslensku stúlkunum í 2-0. Kristín átti mjög góðan leik sem endurspeglar sumarið hjá þessar efnilegu stúlku. Elísa Viðarsdóttir er einnig í hóp liðsins en kom ekkert við sögu í gær. Næsti leikur liðsins er á morgun gegn Sviss.