Tvær í U-19

14.sep.2009  08:53
Þær Kristín Erna Sigurlásdóttir og Elísa Viðarsdóttir voru valdar í U-19 ára landslið Íslands í knattspyrnu sem fer til Portúgals á föstudag til að leika í evrópukeppninni sem fram fer í Algarve.  Þetta er mikill heiður fyrir stúlkurnar sem báðar hafa leikið vel í sumar.  Við óskum þeim til hamingju með þennan árangur.