Þær Kristín Erna Sigurlásdóttir og Elísa Viðarsdóttir voru valdar í U-19 ára landslið Íslands í knattspyrnu sem fer til Portúgals á föstudag til að leika í evrópukeppninni sem fram fer í Algarve. Þetta er mikill heiður fyrir stúlkurnar sem báðar hafa leikið vel í sumar. Við óskum þeim til hamingju með þennan árangur.