Þórarinn Ingi skrifar undir

22.júl.2009  15:24
Þórarinn Ingi Valdimarsson leikmaður meistaraflokks ÍBV skrifaði í dag undir framlengingu á samning sínum. Þessi framlenging þýðir það að hann er samningsbundinn félaginu til 2011.
 
Þórarinn er enn gjaldgengur í 2.flokk og gegnir lykil hlutverki í því liði en einnig er hann mikilvægur í meistaraflokkshópnum.
Þórarinn er einn efnilegasti leikmaður sem ÍBV er með í sínum röðum og við fögnum því að hann vilji vera hér lengur.