Sýnum Frömmurum hvað í okkur býr!

20.júl.2009  13:27
Leiknum var frestað og fer fram í kvöld kl 19.15
Frammarar koma á Hásteinsvöll í kvöld og mæta snarbrjáluðum Eyjamönnum sem eru enn hungraðari en í gær.
 
Leiknum var frestað vegna seinkunar á flugi Fram frá Póllandi þar sem þeir léku í Evrópukeppni og náðu afar góðum úrslitum.
 
Viðar Örn Kjartansson verður fjarri góðu gamni í kvöld þar sem hann tekur út leikbann eftir að honum var sýnt rauða spjaldið á móti Keflavík.
 
Talið er að Gauti Þorvarðarson komi inn í framherjastöðuna.
 
Einnig er talið að Elías Fannar Stefnisson haldi stöðu sinni í markinu.
 
Það er vonandi að sem flestir sjái sér fært að mæta í kvöld þar sem liðið þarf á stuðningnum að halda.
 
Áfram ÍBV