ÍBV-Fram á sunnudaginn

17.júl.2009  14:00
Sunnudagur 19. júlí klukkan 14.00
Eyjamenn mæta spræku liði Fram næsta sunnudag klukkan 14.00. Í síðustu leikjum hafa strákarnir okkar verið að sýna sitt rétta andlit og voru grátlega nálægt því að vinna sigur á Keflvíkingum í seinasta leik. Lið Fram hefur hins vegar haldið upp heiðri íslensku liðana í Evrópukeppninni og verið á góðu skriði í deildinni undanfarið.
 
Fyrri viðureign liðanna sem spiluð var á Laugardalsvelli fór 2-0 fyrir Fram en menn höfðu þó orð á því að Eyjamenn hefðu átt að vinna þann leik.
 
Fram er með marga góða leikmenn í liði sínu eins og: Paul McShane, Auðun Helgason, Hjálmar Þórarinnsson, Sam Tillen og Heiðar Geir Júlíusson.
 
Fyrir þennann leik er ÍBV 11. sæti með 7 stig eftir 11 leiki.
 
Við Eyjafólk verðum að fjölmenna á þennann leik því án stuðnings er liðið aðeins hálft.
 
Með baráttukveðju ÍBV-arinn