Yfirlýsing frá aðalstjórn ÍBV

14.júl.2009  14:57
Yfirlýsing frá aðalstjórn ÍBV
ÍBV Íþróttafélag hefur gengið frá ráðningu nýs framkvæmdastjóra, Tryggva Má Sæmundssyni.

Tryggvi er 33 ára að aldri og vélvirki að mennt.

Tryggvi  Már er ÍBV að mjög góðu kunnur .  Hann hefur starfað í aðalstjórn félagsins frá því 1999 og verið varaformaður frá 2007.  Þá hefur Tryggvi verið í Þjóðhátíðarnefnd frá árinu 2000 ásamt því að koma að starfi ÍBV á margan annan veg.

Tryggvi mun hefja störf sem framkvæmdastjóri  ÍBV Íþróttafélags fljótlega eftir Þjóðhátíð.



                        Aðalstjórn ÍBV Íþróttafélags