ÍBV Íþróttafélag hefur gengið frá ráðningu nýs framkvæmdastjóra, Tryggva Má Sæmundssyni.
Tryggvi er 33 ára að aldri og vélvirki að mennt.
Tryggvi Már er ÍBV að mjög góðu kunnur . Hann hefur starfað í aðalstjórn félagsins frá því 1999 og verið varaformaður frá 2007. Þá hefur Tryggvi verið í Þjóðhátíðarnefnd frá árinu 2000 ásamt því að koma að starfi ÍBV á margan annan veg.
Tryggvi mun hefja störf sem framkvæmdastjóri ÍBV Íþróttafélags fljótlega eftir Þjóðhátíð.
Aðalstjórn ÍBV Íþróttafélags