Stórsigur í fyrsta leik

02.jún.2009  12:47
Stelpurnar í meistaraflokki byrja tímabilið heldur betur vel en í gær léku þær sinn fyrsta leik á tímabilinu gegn Tindastóll/Neisti fyrir norðan.  IBV stúlkur sigruðu  11-0  eftir að staðan í hálfleik var 8-0 Þórhildur Ólafsdóttir gerði 4. Kristín Erna 3. Thelma 2. Sóley 1  og Laura East 1.  IBV varð fyrir áfalli í lok fyrri hálfleiks þegar Becky Merritt nýr leikmaður frá Crystal Palace meiddist á ökla eftir ljóta tæklingu norðanstúlkna.  Ekki er vitað enn hversu lengi hún verður frá en vonandi að hún verði klár fyrir leikinn á sunnudag.  Byrjunarlið IBV: Karítas-Hafdís,Kolbrún,Elísa,Sædís-Laura,Becky,Sóley,Thelma-Kristín,Þórhildur.   Í seinni hálfleik komu Bylgja,Hlíf,Saga og María inná.
Næsti leikur hjá stúlkunum verður á sunnudag kl. 13.00 á Hásteinsvelli.