ÍBV-Grindavík 2-1

24.apr.2009  20:31
ÍBV og Grindavík áttust við á Helgafellsvellinum í dag.  Grindvíkingar eru nú í æfingaferð í Vestmannaeyjum en liðin leika tvívegis og var leikurinn í dag fyrri leikurinn.  Hvorugt félagið tefldi fram sínu sterkasta liði, það bíður leiksins á morgun en þó spiluðu margir af sterkustu leikmönnum liðanna í dag.  Lokatölur urðu 2:1 fyrir ÍBV en úganski leikmaðurinn Tonny Mawejje skoraði sigurmarkið í sínum fyrsta leik fyrir ÍBV, með sínu fyrsta og eina skot í leiknum.