Fundur um málefni mfl. í knattspyrnu.

14.jan.2009  18:25
Um aðra helgi, eða laugard. 24. jan. er fyrirhugaður fundur um málefni mfl. karla í knattspyrnu. Eins og fram hefir komið er nokkur upplausn í knattspyrnuráði félagsins. Við því verður að bregðast strax. Vonast er til þess, að sem flestir er láta sig varða hag ÍBV Íþróttafélags, mæti á fundinn. Á þann hátt eflum við samstöðu innan félagsins. Fyrir liggur, að talsverðar breytingar hafa orðið á öllu rekstrarumhverfi íþróttahreyfingarinnar. Við því þarf ÍBV Íþróttafélag að bregðast eins og önnur félög. Nánari verður fjallað um fundinn í næstu viku.