Góður fundur um 2.fl. karla.

12.jan.2009  21:03
Nú í kvöld, mánudagskvöld boðuðu aðstandendur 2. fl. fótboltastráka til fundar í Týsheimilinu. Fundarefni voru áhyggjur af málefnum flokksins. Ákveðið var að skipa í sérstakt ráð til að koma málum á hreyfingu. Fyrsta mál ráðsins er að finna góðan þjálfara, farið verður í viðræður strax. Mikill hugur var í fundarfólki, en yfir 20 manns mættu á fundinn.