Eining um þrettándagleði ÍBV.

29.des.2008  16:23
Einhver misskilningur er í gangi varðandi þrettándaskemmtun ÍBV. Mjög gott samkomulag er milli ÍBV og Vestmannaeyjabæjar varðandi framkvæmd skemmtunarinnar. Í fréttum RÚV í gærkvöld ver sagt frá hátíðinni á þann veg að skilyrði fyrir styrk Bæjarins væri, að skemmtunin yrði færð að helgi. Hér er misskilningur á ferð, slíkt skilyrði hefir aldrei verið sett fram af hálfu Vestmannaeyjabæjar. Aðeins hefir verið lýst þeirri skoðun, að æskilegt væri að skemmtunin verði færð að helgi, eins og nú hefir verið ákveðið af hálfu ÍBV.