ÍBV þakkar fyrir sig.

10.ágú.2008  16:28

ÍBV Íþróttafélag þakkar fjölmörgum sjálfboðaliðum, starfsmönnum, samstarfsaðilum og öllum, sem komu að framkvæmd Þjóðhátíðar 2008. Það er mikils virði fyrir félagið að geta treyst á allt þetta fólk. Frábært samstarf lögreglu, sýslumanns, Vestmannaeyjabæjar og annarra, sem koma að framkvæmd hátíðarinnar er lykilatriði í því hve vel tókst til. Síðast en ekki síst viljum við þakka gestum hátíðarinnar fyrir skemmtunina. Maður er manns gaman, það sannast á Þjóðhátíð ár hvert. Við hlökkum til að sjá ykkur á næsta ári.