Pæjumót TM í fullum gangi

12.jún.2008  14:36

Pæjumót TM er hafið og leikið á 6 völlum. Veðrið leikur við stelpurnar, hingað til hefir allt gengið að óskum. Fjórtán félög taka þátt í mótinu í ár. Mikil aukning frá fyrra ári. Formleg mótssetning og kvöldvaka verður í Íþróttamiðstöðinni í kvöld og hefst kl. 19.30. Þar mun m.a. fara fram hæfileikakeppni þátttökuliða, verður án efa mikið fjör. Þá mun Hreimur Örn Heimisson koma fram og taka lagið fyrir mótsgesti. Mótið heldur síðan áfram á morgun, m.a. verður leikur landsliðs og pressuliðs síðdegis. Á laugardag verða síðan úrslitaleikir og verðlaunaafhending, mótsslit verða síðan í Höllinni eftir hádegismat.