Nú vantar okkur vinnandi hendur í Dalinn.

23.maí.2008  10:57

Á morgun laugardag vantar okkur duglegt fólk til að ganga frá Dalnum undir tyrfingu. Stór flutningavagn kemur með þökur í Herjólfi laugardagskvöld. Þá verðum við að vera búin að ganga frá svæðinu og gera allt klárt. Hvetjum alla, sem vettlingi geta valdið til að koma í Dalinn laugardag kl. 13.00. Nú er kærkomið tækifæri fyrir alla þá fjölmörgu, sem hafa áhuga á aðð bæta tjaldstæðin í Herjólfsdal, að leggja hönd á plóg. Margar hendur vinna létt verk.

Þjóðhátíðarnefnd ÍBV