Vetrarlok ÍBV á föstudaginn

21.maí.2008  15:17

Ágætu ÍBV-arar, Vetrarlok ÍBV verður haldið í Höllinni n.k. föstudagskvöld. Húsið opnar strax eftir leik ÍBV og Stjörnunnar eða um 21.00. Stuðningsmenn og aðrir velunnarar félagsins eru boðnir velkomnir. Boðið er upp á glæsilegt hlaðborð að venju að hætti Einsa kalda og vonandi fimmaurabrandara frá Sindra Haralds!
Sjáumst öll á vellinum og í Höllinni á föstudag.