Höldum fána ÍBV hátt á loft.

19.maí.2008  14:02

ÍBV Íþróttafélag hvetur alla þá fjölmörgu, sem eiga ÍBV fána, að flagga honum á heimaleikjum félagsins. Nú skulum við sýna íþróttafólki okkar þá virðingu, sem þeir eiga skilið. Knattspyrnuliðið okkar hefir farið vel af stað í vor, það er mikil hvatning fyrir keppnisfólkið, að sjá ÍBV fánann í hæstu hæðum. Knattspynulið kvenna leikur einnig sinn fyrsta heimaleik á föstudag á undan karlaliðinu. Stelpurnar eru nú að koma til leiks eftir nokkurra ára hlé.
Vestmannaeyingar tökum
höndum saman, styðjum keppnisfólkið okkar.