Fjórtán félög komin á Pæjumót TM

19.apr.2008  13:32

Nú í dag var fjórtánda félagið, Leiknir frá Reykjavík, að tilkynna komu sína á Pæjumót TM, sem hefst þ. 12. júní n.k. Þetta er glæsileg þátttaka, mun fleiri félög verða með í sumar en árin þar á undan. Svo virðist sem vel heppnuð mót s.l. ár séu að skila okkur þessum aukna fjölda. Það er fagnaðarefni, og mikil hvatning fyrir ÍBV Íþróttafélag.