Snæfellingar á Pæjumót TM

03.apr.2008  13:51

Það er að færast fjör í þátttöku á Pæjumóti TM. Nú hafa Snæfellingar tilkynnt þátttöku. Þeir ætla að koma með 3 lið. Snæfellsnes er sameiginlegt lið félaganna á Snæfellsnesi, Grundarfjörður og Stykkishólmur. Sérlega ánægjulegt að fá stelpurnar af Nesinu í fyrsta skipti á mótið okkar. Talsverð aukning virðist ætla að verða á Pæjumóti TM 2008.