Þrettándinn á laugardag.

03.jan.2008  10:24
Þrettándagleðin okkar árlega verður n.k. laugardag, og hefst kl. 19.00. Nú er verið að vinna í því, að vekja öll tröllin. Þau eru nú búin að sofa í eitt ár. Nokkuð erfiðlega gengur að koma þeim framúr fletum sínum. Vonandi verða þau klár í slaginn á laugardaginn. Grýla, Leppalúði, jólasveinarnir og allt þeirra hyski er búið að vera á löppum síðan fyrir jól. Þau hlakkar ógurlega mikið til að hitta börnin,áður en þau fara að hvíla sig eftir jólatörnina.